Kæru Seyðfirðingar, Haustroði verður þann 7. október í ár með tilheyrandi markaðsstemningu, uppákomum, sultukeppni og tilboðum.
Markaður verður í Herðubreið á þessu sinni og munu þær Sesselja og Celia sjá um að þar verði hin besta stemning. Til að svo verði er æskilegt að sem flestir bjóði varning og/eða kruðerí til sölu. Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við þær stöllur info@herdubreidseydisfjordur.is eða á Dagný Erlu á netfangið dagny@sfk.is.
Frekari upplýsingar og dagskrá birtist þegar nær dregur.